|
OFFITA - meðferð Hér að neðan eru tengingar inn á nokkra staði sem gefa út óvilhallar upplýsingar eða leiðbeiningar um meðferð við ofþyngd / offitu. Markmið þessa kafla er að stuðla að markvissri notkun lyfja sem ætluð eru þeim sem eru of þungir. Í mars
2001 gaf NICE (National Institude
for Clinical Excellence) í Bretlandi út leiðbeiningar
um notkun orlistat við ofþyngd og offitu og í október
2001 komu út leiðbeiningar um notkun sibutramins. Sjá
nánar á heimasíðu þeirra http://www.nice.org.uk/Cat.asp?c=15712
og http://www.nice.org.uk/cat.asp?c=23003
. Aðalsíða NICE
http://www.nice.org.uk/. Offita
er vaxandi vandamál og eykur sjúkleik og dánartíðni
einkum hjá þeim sem þjást af öðrum
sjúkdómum svo sem fullorðinssykursýki, hárri
blóðfitu og háþrýstingi. Í þessum
tilvikum eykur offita á líkur á hjarta- og æðasjúkdómum.
Í leiðbeiningunum frá NICE
er ráðlagt að nota orlistat eingöngu hjá
einstaklingum sem hafa náð að losa sig við a.m.k.
2,5 kg með breytingu á mataræði og líkamsáreynslu
mánuðinn áður en lyf er gefið og uppfylla
eitt af eftirfarandi skilyrðum: Jafnhliða orlistat meðferð ætti að gera ráðstafanir til að bjóða sértæka aðstoð, stuðning og ráðgjöf um mataræði, hreyfingu og lífsstílsbreytingu. Einnig er ráðlagt að meðferð lengur en í 3 mánuði sé studd rökum um að viðkomandi hafi léttst um a.m.k. 5% líkamsþyngdar frá byrjun lyfjameðferðar og meðferð lengur en í 6 manuði sé studd rökum þess efnis að viðkomandi hafi léttst um a.m.k. 10% líkamsþyngdar frá byrjun lyfjameðferðar. Almennt er meðferð ekki ráðlögð í meir en 1 ár og aldrei lengur en í 2 ár. Meðferðin er ekki ráðlögð nema í aldurshópnum 18 til 75 ára. "Orlistat and sibutramine for obesity" Klínískar leiðbeiningar um offitu voru gefnar út af SIGN (Scottish Intercollegiate Guideline Network) í nóvember 1996. Þær eru númer 8 á leiðbeiningasíðu þeirra og má nálgast þar http://www.sign.ac.uk/ . Þessar leiðbeiningar eru í endurskoðun. SBU (The Swedish Council on Technology Assessment in Health Care) í Svíþjóð hefur haft offitu og meðferð hennar sem eitt af sínum verkefnum og voru leiðbeiningarnar gefnar út í júní 2002. Þær má nálgast á: http://www.sbu.se/admin/index.asp Á vegum Canadian Task Force on Preventive Health Care voru gefnar út leiðbeiningar um efnið 1994 og endurskoðað 1999. Detection, prevention and treatment of obesity http://www.ctfphc.org/ . Ekki er nein umfjöllun þar um lyfjameðferð sem nú er í boði en gagnleg umfjöllun um forvarnir. Á vegum landlæknisembættisins hefur verið stofnaður vinnuhópur sem mun taka til skoðunar og aðlaga klínískar leiðbeiningar frá SIGN um offitu hjá börnum. Vænta má klínískra leiðbeininga um það efni í lok árs 2002. |
|