|
Undirmiga Inngangur Undirmiga er algengt vandamál. Tíðnin er um 8-10% meðal 6 ára barna. Ári síðar eru 15% barnanna orðin þurr, án meðferðar. Æskilegt er að skrá hve mikið barnið drekkur og hve
oft það vætir rúm, áður en meðferð Sjálfsagt er að draga úr vökvadrykkju á kvöldin. Ekki er gert upp á milli rakaskynjara og lyfjameðferðar með desmopressin. Ef fjölskyldusaga er jákvæð eru meiri líkur á árangri með desmopressin. Samvinna, stuðningur, fræðsla (foreldrabæklingur)
og gott eftirlit eru mikilvæg, Meðferð Hafa ber í huga við val á meðferð að hægt er
að lækna undirmigu með rakaskynjara. Rakaskynjari - ýlutæki Notaður í 6 - 8 -vikur. Betri árangur næst, ef tækið er notað í 2 vikur eftir að barnið er orðið þurrt. Desmopressin Nefúði; 10 - 40 míkrog fyrir svefn. Töflur; (0,2 mg) 0,1 - 0,4 mg fyrir svefn. Takmarka skal vökvadrykkju 1 klst. fyrir og 8 klst. eftir lyfjainntöku. Lyfið skal nota í 3 mánuði, þá er tekin vikuhvíld og meðferð endurmetin. Lyfið er hugsanlega hægt að nota tímabundið eftir þörfum. Engar óyggjandi sannanir eru til fyrir því
að desmopressin lækni undirmigu. Upplýsingar varðandi meðferð án lyfja
Athugasemdir
Heimildir
Frá ritstjóra: Nýlegar kerfisbundnar úttektir á gagnsemi
lyfja við undirmigu sýndi að meðferðarárangur var takmarkaður. Úttekt
á þríhringlaga geðdeyfðarlyfjum náði til allra tvíblindra slembaðaðra
rannsókna og endanlegt mat var gert á safni 22 rannsókna sem náðu
til 1100 barna. Engin áhrif voru merkjanleg eftir að meðferð lauk
og svipaður árangur eða um ein þurr nótt af hverjum sjö var í öllum
lyfjahópunum (imipramín, amitriptylín,viloxazín og desipramín). Árangur
af desmopressín og þríhringlaga geðdeyfðarlyf var svipaður. Á sama
hátt náði úttekt á desmopressín til 21 rannsóknar þar sem 948 börn
voru meðhöndluð. Gæði margra rannsókna voru lítil og eins og að ofan
þá var ekki merkjanlegur árangur eftir að meðferð lauk og fækkun blautra
nátta var um ein af hverjum sjö. Aukaverkanir af desmopressín voru
fátíðar en einkenni eins og ertingur í nefi og blóðnasir komu fyrir
auk þess sem tilkynnt hefur verið um hættu vatnseitrun í kjölfar vatnsþambs
fyrir svefn. Vara ætti sjúklinga og foreldra við þessu. Samanburður
leiddi í ljós að rakaskynjari var áhrifaríkastur þegar litið var á
langtímaárangur. Kostnaður við desmopressín er mestur þar næst við
rakaskynjara en minnstur við þríhringlaga geðdeyfðarlyfin en þeim
fylgja aftur flestar aukaverkanir. Glazener CMA, Evans JHC. Tricyclic
and related drugs for nocturnal enuresis in children (Cochrane Review).
In: The Cochrane Library, Issue 2, 2000. Oxford: Update Software.
http://hiru.mcmaster.ca/cochrane/cochrane/revabstr/ab002117.htm
Glazener CMA, Evans JHC. Desmopressin for nocturnal enuresis in children
(Cochrane Review). In: The Cochrane Library, Issue 2, 2000. Oxford:
Update Software. http://hiru.mcmaster.ca/cochrane/cochrane/revabstr/ab002112.htm |