ÓHÁÐAR LYFJAUPPLÝSINGAR

 

Inngangur

Óháðar lyfjaupplýsingar eru gefnar út reglulega í mörgum löndum og þá oftast afheilbrigðisyfirvöldum
eða séráhugahópum um þessi mál.

Hér að neðan eru helstu uppsprettur þessa tíundaðar og læknar hvattir til að nýta sér þær.
Í flestum tilvikum er um mjög faglega vinnu að ræða og niðurstöður byggðar á vísindalegum
upplýsingum. Auk þess er rétt að benda á tvær nýlegar greinar tengdar þessu: Í fyrsta lagi grein
í Kanadíska Heimilislæknablaðinu þar sem farið er yfir heimasíður sérlega valdar fyrir heimilislækna.
Can Fam Physician 1997;43:1104-1113 eða http://dfcm18.med.utoronto.ca/anthes/hpgdfcm1.htm.

Í öðru lagi Guide to the internet Lancet 1998;351(suppl I):1-17.


Pappírsútgáfur

Prescrire international

Útdrættir á ensku úr La revue Prescrire (franska útgáfan). Mjög góð úttekt á lyfjum og notkun þeirra.
Þora að taka afstöðu og oft mjög gagnrýnir. Nokkuð dýrt í áskrift en er til á bókasafni Landlæknisembættisins (frá 1997).

Fax: +33 1 4807 8732 (París) en annars eru umsóknareyðublöð hjá Ingu J. Arnardóttur (TR) vs: 560-4494

Netslóðin er: http://myweb.worldnet.net/~emmpetit/prescrir.htm

 

MeReC bulletin

Kemur frá Liverpool UK. Tekur fyrir ákveðna lyfjaflokka í einu. Auðveld og gagnleg lesning.
Er til á bókasafni Landlæknisembættisins (frá 1997).

Hér er hægt að nálgast blöðin með því að fara inn á "bulletin index"
http://www.npc.co.uk

 

Australian prescriber

Kemur frá Ástralíu, eins og nafnið gefur til kynna. Auðveld og gagnleg lesning. Dreift ókeypis,
Australian Prescriber mailing service GPO Box 1909 CANBERRA ACT 2601.
Auðvelt er að nálgast blaðið á veraldarvefnum

http://www.australianpresciber.com/

 

The Medical Letter

Blaðið hefur undanfarið verið sent öllum heimilislæknum í boði TR"
Nú fyrir skömmu hefur verið hægt að nálgast valið efni úr
bláðinu á netinu á slóðanum http://www.medletter.com

 

Ögat på läkemedel

Gagnrýnið mat á notagildi lyfja. Södersjukhuset og Ersta sjukhus Svíþjóð. Ritari klíniskrar
lyfjafræðideildar er Margarete Fogelström; fax+ 46 616-3566.


Upplýsingar á veraldarvefnum

 

- Nýtt efni-
Rationel Farmakoterapi.
Nýtilkomið blað á vegum dönsku lyfjamálastofnunarinnar og ritstýrt
af Jens P Kampmann.
Mjög gagnleg lesning. http://www.irf.dk/oversigt-bladet.htm


Australian prescriber

http://www.australianprescriber.com/

 

Bandolier

Mjög skemmtileg "evidence based" framsetning á læknisfræðilegu efni, fimm stjörnur.
Auðveld leitarvél og tengsl við marga aðra gagnlega staði (,,Peer reviewed" ,,Evidence based")

http://www.jr2.ox.ac.uk/Bandolier/index.html

 

Martindale’s Health Science Guide

Martindale stendur alltaf fyrir sínu, en hér eru líklega yfir 10 þúsund blaðsíður um lyfjafræði og margt annað.

http://www-sci.lib.uci.edu/HSG/Pharmacy.html

 

Svenskt medicinskt Fönster

http://www.smed.org

 

Läkemedelsverket

Sænskar leiðbeiningar um meðferð ákveðinna sjúkdóma. Unnið síðustu ár í samvinnu við Norðmenn.
Gefnar eru út prentaðar leiðbeiningar nokkrum sinnum á ári og kannast margir læknar við þær.
Á heimasíðu þeirra má nálgast nýlegar leiðbeiningar t.d. um beinþynningu, herpes vírus sýkingar og
iðrasýkingar sem unnar voru 1997. Einnig margar eldri leiðbeiningar um aðra sjúkdómaflokka.

http://www.mpa.se

 

Evidence-Based Medicine

Góður staður til að byrja á og endist von úr viti því tengsl eru í allar áttir við staði í háum gæðaflokk.
Gagnrýnið mat á vísindagreinum. Lesklúbbar m.a. American College of Physicians sem er mjög hagnýtt.

http://hiru.mcmaster.ca/ebmj/default.htm

*** http://www.acponline.org/journals/ebm/ebmmenu.htm

 "Cochrane samtökin" abstrakta blaðsíða (tengingin er) http://hiru.mcmaster.ca/cochrane/cochrane/revabstr/mainindex.htm

Essential Drugs Conference

http://www.healthnet.org/programs/edrug.html

 

International Network for Rational Use of Drugs (INRUD)

http://www.msh.org/inrud/index.html

WHO Guide to Good Prescribing

Mörgum reyndum læknum finnst margt hér vera sjálfsagðir hlutir, en upplýsingarnar eru gagnlegar
og nýtast t.d. vel læknanemum.

http://www.med.rug.nl/pharma/who-cc/ggp/homepage.htm

 

Frír aðgangur að Medline (margir staðir)

BioMedNet er með mikið af upplýsingum og veitir m.a. ókeypis Medline þjónustu. Það þarf fyrst að
skrá sig inn (frítt), nema menn vilji fá greinar sendar til sín.

http://www.biomednet.com/join/join.exe   (nýskráning)

 

NHS Center for Reviews and Dissemination

Tengist heimasíðu háskólans í York. Þarna er að finna samantekt á rannsóknum og upplýsingum
um mjög margt sem tengist heilbrigðiskerfinu ásamt leiðbeiningum um meðferð.

http://www.york.ac.uk/inst/crd/dissem.htm#eh

 

Medscape

Hér þarf að skrá sig inn (frítt) til að nýta sér allt sem í boði er. Hægt er að láta kerfið muna einkennisorð
(ID) og aðgangsorð

http://www.medscape.com

http://www.medscape.com/misc/form/medlineinflive.html


Unnið 1998 og endurskoðað 2000 af Sigurði Helgasyni.