svefntruflanir.JPG (17114 bytes)

Skoðið bækling fyrir almenning um þetta efni.

 

 

MEÐHÖNDLUN SVEFNTRUFLANA

 

Inngangur

Orsakir

Við meðhöndlun svefntruflana er mikilvægt að greina og meðhöndla undirliggjandi
svefnleysisorsök ef hægt er. Líkamlegir sjúkdómar geta margir truflað svefn, ýmis
lyf, geðsjúkdómar, vímuefnanotkun, félagslegur vandi, svo og hinir eiginlegu svefnsjúkdómar.

 

Ráð til að bæta svefn

Áður en gripið er til lyfja þarf að upplýsa viðkomandi vel um ráð til að bæta svefn, s.s.
að gott er að hafa reglu á svefn- og vökutíma, slökun, regluleg hreyfing, forðast
ber kaffi að kvöldi en létt máltíð og heitt bað getur hjálpað, þægilegt umhverfi í
svefnherbergi o.fl.. Sjá nánar bækling um svefnbætandi ráð.

Svefn

Nokkur mikilvæg atriði við lyfjagjöf.

Ákveða ætti lengd lyfjameðferðar strax í upphafi. Langvarandi notkun svefnlyfja
er oftast gagnslaus og getur verið skaðleg.


Athugasemdir

  • Ráðleggja ætti sjúklingi að taka lyfin eftir þörfum, í minnsta virka skammti og í eins
    stuttan tíma í einu og kostur er.
  • Gefa ætti eldra fólki helming af venjulegum skammti.
  • Hafa ber í huga helmingunartíma lyfjanna, sem oft geta hlaðist upp og valdið verulegum
    dageinkennum og orsakað sljóleika, syfju, skerta athygli ásamt aukinni hættu á byltum.
  • Stuttverkandi bensódíasepín geta valdið minnistruflunum. Aukin ávanahætta og
    fráhvarfseinkenni fylgir notkun þeirra.
  • Vera vakandi fyrir erfiðleikum við að sofna "rebound insomnia" eftir að lyfjameðferð
    er hætt.
  • Muna verður að mörg algeng lyf hafa áhrif á útskilnað svefnlyfja og geta aukið
    þéttni þeirra í blóði, t.d. hægir címetidín á útskilnaði bensódíasepína um helming.

Fyrsta lyfjaval

Zópíklón 3,75 -7,5mg
Zolpidem 5,0 -10mg
Flúnítrasepam 0,5 - 1,0mg
Oxazepam 0 - 15mg (þarf að gefa 2 klst. fyrir svefn).

Annað lyfjaval

Antihistamín lyf

Kjörlyf fyrir fíkla. Antihistamín lyf sem notuð eru sem svefnlyf hafa langan helmingunartíma og geta gefið einkenni næsta dag, t.d. sljóleika, syfju og slysahættu.
Þol myndast gegn verkun þeirra.

Prómetasín 25 - 50mg
Hýdroxizín 25 - 50mg

Þriðja lyfjaval

Geðlyf

Þunglyndislyf og neuroleptica sem hafa róandi verkun hafa talsvert verið notuð sem svefnlyf.
Þessi lyf ætti aðeins að nota ef svefntruflanir eru taldar vera af völdum geðsjúkdóma.
Flest þessara lyfja hafa langan helmingunartíma og geta haft veruleg áhrif daginn eftir.
Þessum lyfjum geta fylgt hættulegar og óafturkræfar aukaverkanir.

 

Tafla yfir nokkur algeng svefnlyf

Innihaldsefni t1/2 Uppsöfnun við daglega notkun Heppilegur skammtur fyrir eldri Hætta á áhrifum næsta dag Virk niðurbrotsefni
Nítrasepam 18-36 Já, mikil 2,5 mg Nei
Flúnítrasepam 13-19 Já, mikil 0,5 mg
Díasepam 21-37 Já, mjög mikil 2,5 mg
Oxasepam 10 Óveruleg 15 mg   Nei
Tríasólam 2-4 Engin 0,125 mg Nei Nei
Flúrazepam 2-3 (50-100) 15 mg
Zópíklón 4-6 Nei 3,75 mg Nei Nei
Zolpídem 1-3 Nei 5 mg Nei Nei

Heimildir

  1. Behandiling av sömnstörningar. Information från Socialstyrelsens läkemedelsavdeling 1988;2:23-27
  2. Management of Anxiety of Insomnia. MeReC Bulletin 1995;6:37-40
  3. Insomnia. Psychiatry and Behavior. Drugs of Choice 1997 - Formulary for general practice.
  4. Kupfer DJ, Reynolds CF. Management of Insomnia. N Engl J Med 1997;336:341-146.

Unnið af Bryndísi Benediktsdóttur, Sigríði D MAgnúsdóttur og Þórarni H Harðarsyni 1999.

Frá ritstjóra: Nú nýverið voru unnar leiðbeiningar um meðhöndlun svefntruflana af vinnuhóp á vegum sænsku og norksu lyfjaamálastofnananna. Afraksturinn er ítarlegt plagg og svo styttri ráðleggingar. Má nálgast þær bæði sem skyggnur og textaskjöl á heimasíðu "Lækemdelsverket" http://www.mpa.se/workshops/ie_workindex.html

Unnið 1998/99