LYFJAÁVÍSANIR

Lyfjaávísanir til aldraðra

Inngangur

Aldraðir eru misleitur hópur – frá þeim hraustu til þeirra sem hafa marga sjúkdóma.
Mikill einstaklingsmunur.

Háaldraðir (eldri en 80 ára) eru í sérstakri hættu.

Það er skylda okkar að þekkja breytingar sem geta átt sér stað hjá öldruðum.

Veikindi geta breytt líkamsstarfsemi mikið og þegar saman fara veikindi og hár aldur
er sérstakrar aðgátar þörf.

 

Almennt má segja með vaxandi aldri

  • Minnkar munnvatnsmyndun.
  • Kynging er stundum erfiðari.
  • Eggjahvíta í blóði minnkar nokkuð (minni binding lyfja og því aukinn
    styrkur virks lyfs í umferð).
  • Umbrot/útskilnaður lyfja minnkar oftast.
  • Fituhlutfall eykst, sem breytir dreifirými fituleysanlegra lyfja.
  • Lyfhrif sumra lyfja breytast.

Farið yfir lyfjaávísanir með eftirfarandi í huga

  • Er lyfsins enn þörf?
  • Er lyfið tekið rétt?
  • Hafa aukaverkanir komið fram?

Hafið í huga þegar lyfi er ávísað

  • Þarf að minnka skammta?
  • Er stutt milli verkunar og eiturverkunar?
  • Hvernig útskilst lyfið og hvaða milliverkanir geta orðið?

 

Notum lyf sem við þekkjum vel, eru örugg og ekki gjörn á milliverkanir

Athugasemdir

  • Höldum lyfjaávísunum eins einföldum og mögulegt er.
  • Notum sem fæst lyf. Því fleiri lyf, því meiri hætta á aukaverkunum og að
    lyfjum sé ruglað saman.
  • Útvegum aðstoð við lyfjaskömmtun ef með þarf.
  • Hvetjum til notkunar á lyfjaboxum.
  • Hvetjum fólk til að borða reglulega, hollan mat við hæfi hvers og eins.
  • Göngum úr skugga um að lyfin séu notuð rétt og merkingar séu skýrar.
  • Forðumst blönduð og langvirk lyfjaform.
  • Öll lyf, sem ekki eru notuð við langvinnum sjúkdómum s.s. svefnlyf og verkjalyf,
    er rétt að ávísa í takmarkaðan tíma í einu og endurmeta síða
    þörf reglulega.
  • Forðumst að nota bólgueyðandi gigtarlyf, sem verkjalyf.

Frá ritstjóra:

Vegna þess hve mikið vandamál milliverkanir lyfja skapa er rétt að benda á mjög góða greinagerð um þetta.
Drug interactions in general practice. MeReC 1999; vol 10 no 4. http://www.npc.co.uk
/(fara á slóðann "bulletin index")
Unnið 1997 af Sigurði Helgasyni og Jóni Eyjólfi Jónssyni.
Endurbætt í desember 1999 af sömu auk Pálma V Jónssonar

Á síðunni hér að neðan er að finna mikið af heimildum um óviðeigandi lyfjameðferð hjá öldruðum ("inappropriate drug therapy"). http://www.ascp.com/
public
/

Þetta er unnið af ASCP sem eru
samtök um 7000 Bandarískra lyfjafræðinga.

http://www.ascp.com/

Samtökin eru studd af lyfja- fyrirtækinu Bayer án þess að það hafi nokkuð með útgáfu eða fræðslustarf þeirra að gera.
[The American Society of
Consultant Pharmacists is
the national professional
association representing
nearly 7,000 pharmacists
who provide pharmaceutical
care services for America’s
senior citizens.]

Þeir sem hafa áhuga á enn
frekari upplýsingum er bent
á útgáfu WHO/EURO á "Drugs for the Elderly" sem var endurskoðuð 1997.
Hægt að panta hjá

http://www.who.dk/ch/pha