II. Lungnabólga hjá sjúklingum með langvinna lungnateppu

 

Inngangur

Kaflarnir um berkjubólgu (bráð og bráð versnun) og lungnabólgu eru í endurskoðun og þáverður tekið mið af nýlegum “evidence based” leiðbeiningum frá Skotlandi [“Community management of lower respiratory tract infection in adults”] sem komu út í júní 2002. Leggja ber áherslu á að þetta á allt við utanspítalasjúklinga.

Í þessum leiðbeiningum sem ná aðeins yfir meðferð utan spítala er lögð áhersla á að meta alvarleika sýkingarinnar og praktíska flokkun neðri öndunarfærasýkinga. Við þekkjum öll vandkvæði við klínískt nothæfa skilgreiningu á neðri öndunarfærasýkingu en hér er notast við hósta, fyrri lungnasögu, mæði, lit á uppgang, ný merki frá lungum við skoðun og atriði sem benda á aukinn alvarleika sýkingar (hröð öndun, lágþrýstingur, rugl og fleira). Sjúklingum er síðan skipt í þrjá hópa.

  1. Bráð versnun á langvinnum lungnateppusjúkdóm. Sjúklingar án nýrra merkja/teikna frá lungum við hlustun en hafa undirliggjandi langvinnann lungnasjúkdóm og kvarta um aukna mæði og litaðann uppgang.
  2. Sjúklingar með ný staðbundin teikn frá lungum (brak eða breytt öndunarhljóð) og grunaðir um lungnabólgu (“Community aquired pneumonia”).
  3. Neðri öndunarfærasýking án gruns um lungnabólgu þ.e. engin staðbundin teikn við lungnahlustun hjá sjúkling sem áður var hraustur og uppfyllir engin atriði sem bendir til aukins alvarleika sýkingar.

Leiðbeiningarnar hafa flæðiskema aftast og einnig er mikil áhersla lögð á fræðslu til sjúklinga og sérstakt útbýti ætlað þeim fylgir. Fyrirhugað er að þýða það á íslensku og staðfæra. Nálgast má leiðbeiningarnar á http://www.sign.ac.uk/ undir “guidelines”.

Einnig er bent á nýlegar leiðbeiningar unnar af Alberta Medical Association í Kanada http://www.albertadoctors.org/resources/guidelines.html eða http://www.albertadoctors.org/resources/infectious.html en titlarnir eru:
Guideline for the Management of Acute Exacerbation of Chronic Bronchitis (AECB) (maí 2000 6 bls.)
Guideline for the Management of Acute Bronchitis (maí 2000 8 bls.)
Appendix: Management of Acute Exacerbation of Chronic Bronchitis (AECB) (1 bls)
Guideline for The Diagnosis and Management of Community Acquired Pneumonia:Pediatric (janúar 2002 11 bls.)
Guideline for The Diagnosis and Management of Community Acquired Pneumonia: Adult (febrúar 2002 15 bls.)

Æskilegt er að taka hrákasýni í ræktun. Meiri líkur á b -laktamasamyndandi H. influenzae,
M. catarrhalis
og fjölónæmum pneumokokkum, en hjá öðrum sjúklingum með lungnabólgu.


Fyrsta meðferð

amoxicillín-klavúlanat 500 mg x 3 á dag
cefúroxím axetíl 500 mg x 2 á dag






Unnið af Ingólfi Kristjánssyni,
Jón Steinari Jónssyni og
Karli G Kristinssyni
1997