Klínískar leiðbeiningar frá febrúar 2001
Meðferð og greining klamýdíu

 

SMITSJÚKDÓMAR

Kynsjúkdómar – Klamydía

Við vinnu þessa var stuðst við leiðbeiningar unnum af Scottish Intercollegiate Guideline Network (SIGN) "Management of genital Chlamydia trachomatis infection" frá mars 2000. Þær leiðbeiningar eru "evidence based" og tengja einstaka ráðleggingar við þann vísindalega grunn sem að baki liggur. Á leiðbeiningalista SIGN http://www.sign.ac.uk/guidelines/published/numlist.html eru þær númer 42.

Ráðleggingarnar hafa verið endurskoðaðar 2002 og 2003 og m.a. í ljósi nýlegra leiðbeininga frá CDC í Bandaríkjunum. Centers for Disease Control and Prevention. Sexually transmitted diseases treatment guidelines 2002. MMWR 2002;51(No. RR-6): www.cdc.gov/mmwr/mmwrpvol.html

Einnig er bent á leiðbeiningar unnar á vegum Heilbrigðisyfirvalda ("Sjúkdómavarnastofnun") í Kanada(júlí 1998) um kynsjúkdóma sem finna má á http://www.hc-sc.gc.ca/hpb/lcdc/publicat/std98hls/std98h_e.html en heildarleiðbeiningarnar eru 266 bls og hægt er að nálgast þær sem pdf skrá hér http://www.hc-sc.gc.ca/hpb/lcdc/publicat/std98/pdf/std98_e.pdf

Fyrsta meðferð

Sýklalyf
Azitrómýcín 1 gr einu sinni
Eða  
Doxýcýklín 100 mg x 2 á dag í 7 daga
Eða  
Erýtrómýcín 500 mg x 4 á dag í 7 daga
Eða  
Ófloxacín 200 mg x 2 á dag í 7 daga

Meðferð á meðgöngu


Erýtrómýcín 500mg x 4 á dag í 7 daga
   
   




Athugasemdir
Mjög handhægt er að nota leiðbeiningar frá Landspítalanum um sýnatöku og fleira
og má finna þær hér:
http://www.rsp.is/syklafr/handbok/synataka.htm
Þeir sem vilja sjá ráðleggingar félags breskra fæðingar- og kvensjúkdómalækna um
meðferð við móðurlífsbólgum (PID) geta farið inn hér:
http://www.rcog.org.uk/guidelines/pelvic.html

Unnið 1997/ Endurskoðun apríl 2003
Unnið af Sigurði Helgasyni heimilislækni og Atla Árnasyni heimilislækni.
Lesið af Haraldi Briem og Sigurði Guðmundssyni sérfræðingum í smitjsúkdómum.