LYF VIÐ INFLÚENZU

Vinnuhópur um klínískar leiðbeiningar hefur verið að störfum um þetta efni síðastliðið ár. Þar til niðurstöður hans birtast þykir rétt að benda á valdar gagnreyndar leiðbeiningar um efnið.

Leiðbeiningar frá Läkemedelsverket í Svíþjóð frá 17 október 2002.

Behandling och profylax av influensa med antivirala medel. Version: 3:0

Heimasíða:  http://www.mpa.se/workshops/matrisworkshop.shtml

Ágrip:  http://www.mpa.se/workshops/reko/influ_antivirala.shtml

Heildarleiðbeiningar: http://www.mpa.se/workshops/reko/bakg_dok/b_influ_antivirala.shtml

 

Leiðbeiningar frá National Institute for Clinical Excellence (NICE)

Heimasíða: http://www.nice.org.uk/

Í nóvember 2000 voru birtar ráðleggingar (no 15) sem tóku yfir eldri ráðleggingar (október 1999). Þær innihalda m.a. upplýsingar fyrir almenning. Öfugt við eldri ráðleggingar þá er nú ráðlagt að nota zanamivir hjá áhættusjúklingum þegar vitað var af inflúenzu í umhverfinu og hægt að hefja meðferð innan 48 klukkustunda frá upphafi einkenna. http://www.nice.org.uk/cat.asp?c=426  Þessar leiðbeiningar voru síðan ítrekaðar 2001 og ráðgerð endurskoðun 2002 staðfest.

Í kjölfar beiðni frá heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi (DOH) um heilsuhagfræðilega úttekt á notkun zanamivir, oseltamivir og amantadine af var í september 2002 birt skýrsla upp á 493 blaðsíður. Sú skýrsla er enn til umsagnar en þó aðgengileg (SYSTEMATIC REVIEW AND ECONOMIC DECISION MODELLING FOR THE PREVENTION AND TREATMENT OF INFLUENZA A AND B.) http://www.nice.org.uk/Docref.asp?d=35650

 

Upplýsingar frá Heilbrigðisyfirvöldum í Bretlandi (DOH) um inflúenzu http://www.doh.gov.uk/flu.htm

 

Canadian Coordinating Office for Health Technology Assessment (CCOHTA)  http://www.ccohta.ca./entry_e.html (hér þarf að gefa upp netfang til að fá aðgang – þetta er frítt og eini tilgangur með því að skrá sig inn er að CCOHTA geti fylgst með notkun síðunnar)

An assessment of oseltamivir for the treatment of suspected influenza.

Do neuraminidase inhibitors prevent influenza?

Economic Evaluation of Zanamivir for the Treatment of Influenza

 

Einn undirhópur (COCHRANE ACUTE RESPIRATORY INFECTIONS GROUP The Cochrane Library, Issue 4, 2002. Oxford: Update Software Ltd) hjá Cochrane samtökunum vinnur m.a. að kerfisbundnum yfirlitum um áhrif bólusetningar og veirulyfja á influenzu. Ágrip yfirlitanna má nálgast í gegnum slóða hér að neðan en heildarplöggin má nálgast í gegnum landsaðgang í OVID .http://www.cochrane.org/cochrane/revabstr/g090index.htm

Vinnuhópurinn hefur aðsetur í Ástralíu (University of Queensland) http://www.sph.uq.edu.au/ari/

 

Efni ætlað almenningi:

Mjög gott fræðsluefni um inflúensu og inflúensubólusetningar frá Helga Guðbergssyni yfirlækniAtvinnusjúkdómadeildar Heilsuverndarstöðvarinna má finna á vef þeirra. www.hr.is/HR/atvinnusj/influensa.htm

 

Einnig er rétt að benda á fræðsluefni frá NICE um zanamivir (Relennza®) á http://www.nice.org.uk/article.asp?a=17255

Unnið í janúar 2000 af Sigurði Helgasyni og Sigurði Guðmundssyni lesið af Haraldi Briem og endurskoðað í desember 2002