|
HÆGÐATREGÐA HJÁ
FULLORÐNUM
Inngangur
Hægðatregða er algeng og má skilgreina sem hægðalosun
sjaldnar en 3svar í viku samfara
einkennum s.s. uppþembu og verkjum. Orsakir fyrir hægðatregðu eru
margvíslegar.
Algengar orsakir hægðatregðu eru kyrrseta, trefjasnautt fæði og lítil
vökvaneysla, en einnig
röskun á venjum t.d. við ferðalög. Hægðatregða getur einnig verið
aukaverkun lyfja, t.d. valda verkjalyf sem innihalda kódein eða morfín,
hægðatregðu. Mörg önnur lyf koma einnig til greina.
Hægðalyf geta t.d. valdið hægðatregðu ef þau eru misnotuð. Við meðferð
hægðatregðu er
höfuðáhersla ávallt lögð á fyrirbyggjandi aðgerðir, þar sem reglubundið
líferni, dagleg
vatnsdrykkja, trefjarík fæða og hæfileg hreyfing eru aðalatriðið.
Lyfjaval
Eingöngu fyrir þá sem geta drukkið nóg vatn og eldra fólk sem
ekki er rúmfast
Rúmmálsaukandi lyf (A 06 AC)
Semen Psyllii t.d. HUSK: 1 matskeið á dag með a.m.k. einu glasi af
vatni.
Ef þessi meðferð virkar ekki eða þolist illa má reyna, eða bæta við
Hægðalyfi með osmótíska verkun (A 06 AD)
Sorbitol mixtúra
Laktúlósa mixtúra 15 - 30 ml í senn allt að 4 sinnum á dag.
og/eða
Lyf sem eykur þarmahreyfingar (A 06AB)
Senna, t.d. Senokot 1-2 töflur að kvöldi 3svar í viku.
Takmarka ber meðferð með Senna lyfjum við fyrirfram ákveðinn tíma.
Tvö síðastnefndu lyfin eru notuð við meðferð hægðatregðu hjá eldra
fólki sem er orðið lasburða og ekki er tryggt að drekki nóg af vatni.
Þá er meðferð hafin með M. Sorbitol og Senna bætt við ef þarf.
Ef rembingur er höfuðvandamál og erfiðleikar eru á
að koma hægðum frá sér er hægt að nota,
auk ofangreindra lyfja.
Bísakódýl endaþarmsstíla t.d. Dulcolax, einn stíl
að morgni eftir morgunverð, mest 3svar í viku.
Athugasemdir
Í byrjun getur þurft að losa um hægðir með þreifingu
hjá einstaklingum með langvinna hægðatregðu
og uppsöfnun hægða í endaþarmi og ristli. Þá er losun hægða með rektal
þreifingu fylgt eftir með:
Innhellislyfjum (A 06AG), en þau eru einnig notuð
til að tæma þarma fyrir röntgenskoðanir eða
skurðaðgerðir.
Biskódýl - Toilax, Dókusat natríum - Klyx eða Lárýlsúlfat
- Mícrolax
Heimildir
- Effectiveness of laxatives in adults University
of York. NHS Centre for Reviews and Dissemination. Effectiveness
of laxatives in adults..Effective
Health Care 7(1): 12.
- Systematic review of the effectiveness of laxatives
in the elderly. Petticrew M, Watt I, Sheldon T. Health
Technology Assessment Vol.1: No.13 1997: 1(13) 53.
- SM Tramonte, NB Brand, CD Mulrow et al. The treatment
of chronic constipation: a systematic review. Journal of General
Internal Medicine 1997 12: 15-24.
- Locke GR, Pemberton JH, Phillips SF. American
Gastroenterological Association medical position statement: guidelines
on constipation. Gastroenterology
2000 Dec;119(6):1761-6.
- MeReC 1999; vol 190 no 9. "The management
of constipation" http://www.npc.co.uk/
- Donatelle EP. Constipation: Pathophysiology and
treatment. Am Fam Physician 1990;42:1335-1342
- Harari D, Gurwitz JH, Minaker KL. Constipation
in the elderly. JAm Geriatr Soc 1993;41:1130-1140
- Cheskin LJ, Kamal N, Crowell MD, Schuster MM,
Whitehead WE.
- Mechanisms of constipation in older persons and
effects of fiber compared with placebo. J Am Geriatr Soc 1995;43:666-669
- Kot TV, Pettit-Young NA. Lactulose in the management
of constipation: a current review. Ann Pharmacother 1992;26:1277-1282
- Passmore AP, Wilson-Davies K, Stoker C, Scott
ME. Chronicconstipation in long stay elderly patients: a comparison
of lactulose and a senna-fibre combination. BMJ 1993;307:769-771
- Puxty JAH, Fox RA. Golytely: a new approach to
faecal impaction in old age. Age and Ageing 1986;15:182-184
- Harari D. et al. Correlates of Regular Laxative
Use by Frail Elderly Persons. Am.J.of Med.1995;99(5):513-518.
Unnið 1998 af Jóni E Jónssyni, Einari
Magnússyni og Sigurði Helgasyni og endurskoðað 1999 af Ingolf Pedersen
og Sigurði Helgasyni.
Frá ritstjóra:
Nýleg úttekt á meðferð við hægðatregðu
á meðgöngu á vegum Cochrane samtakanna sýndi að trefjar hefðu
gagnleg áhrif. Jewell DJ, Young G. Interventions for treating constipation
in pregnancy (Cochrane Review). In: The Cochrane Library, Issue 1,
2003. Oxford: Update Software. http://www.update-software.com/abstracts/ab001142.htm
Endurskoðað í apríl 2003.
Sigurður Helgason
|