SMITSJÚKDÓMAR


Ferðamannaniðurgangur: Fyrirbyggjandi aðgerðir

 

1. Fyrsta val

Í flestum tilfellum er ekki ráðlagt að nota lyfjameðferð fyrirbyggjandi.

2. Lyf til vara.

Hjá fullorðnum í sérstökum áhættuhópum, eða við ferðalög undir sérstökum
kringu

mstæðum er hægt að minnka líkur á niðurgang þann tíma sem einstaklingur
er í hættu og í tvo daga eftir það. Heildartími fyrirbyggjandi meðferðar ætti þó ekki
að vera >3 vikur.


Trímetoprim/
sulfametoxazól
Sterkar: 160/800 mg 1 tafla á dag
eða
Ófloxacín 300mg einu sinni á dag
eða
Cíprófloxacín 500mg einu sinni á dag

Athugasemdir

  • Rétt er að benda á upplýsingar frá CDC sem eru endurskoðaðar reglulega og finnast á
    veraldarvefnum: http://www.cdc.gov/travel/foodwatr.htm
  • Vandfýsið val á mat og drykk getur minnkað líkur á að fá ferðamannaniðurgang
  • Í  stað þess að allir taki fyrirbyggjandi sýklalyf er skynsamlegra að beita strax áhrifaríkri meðferð.

Heimildir

  1. The Medical Letter 1998;40:47-50
  2. British National Formulary No35(march) 1998 pp 41, 533.
  3. National Institutes of Health. Travelers’ diarrhea: consensus development conference statement.
    Rev Infect Dis 1986;8(suppl 2):S227-33.
  4. World Health Organization. International travel and health--vaccination requirements and health advice.
    Geneva: WHO, 1989:56.
  5. DuPont HL, Ericsson CD, Johnson PC, et al. Prevention of travelers’ diarrhea by the tablet formulation of
    bismuth subsalicylate. JAMA 1987;257:1347-50.
  6. DuPont HL, Ericsson CD. Prevention and treatment of travelers’ diarrhea. N Engl J Med 1993;328:1821-7.
  7. Ericsson CD, DuPont HL, Mathewson JJ, et al. Treatment of travelers’ diarrhea with sulfamethoxazole and
    trimethoprim and loperamide. JAMA 1990;263:257-61.

 



Unnið af Sigurði Helgasyni heimilislækni, Haraldi Briem og Sigurði Guðmundssyni smitsjúkdómalæknum.
Unnið 1998/99