|
SMITSJÚKDÓMAR
Ferðamannaniðurgangur: Meðferð við kasti
1. Fyrsta val
Mikilvægt er að drekka vel. Ráðlagðar eru tilbúnar
blöndur eða duft til
upplausnar í þessum tilgangi.
2. Lyf til vara.
Þegar ferðamannaniðurgangur er verulegur eða svæsinn (meira en vægur).
Trímetoprim/
sulfametoxazól |
Sterkar: 160/800 mg 1 tafla tvisvar
á
dag í 3 - 5 daga. |
|
eða
Ófloxacín |
300 mg tvisvar á dag í 3 - 5 daga |
eða
Cíprófloxacín |
500 mg tvisvar á dag í 3 - 5 daga eða í einum skammti einu
sinni. |
og með einhverjum
af ofantöldum
sýklalyfjum
|
|
| lóperamíð (Imodium 2mg® ) |
4 mg hleðsluskammtur og síðan 2 mg eftir hvern
niðurgang en þó mest 16 mg (8 töflur) á dag. |
Athugasemdir
- Með ferðamannaniðurgang er átt við skyndilegann niðurgang oftast
vatnsþunnann en ekki blóðugann. Meðgöngutíminn er 4-8 dagar og niðurgangur
varir oftast í 3-4 daga. Hjá helming sjúklinga fylgja kviðverkir
og þriðjungur fær ógleði og uppköst. Um 10% fá hitavellu.
- Við langvinnan niðurgang eða blóðugann eða ef hiti er hár ætti
að hafa í huga alvarlegri sýkingar.
- Gott er að nota leiðbeiningar frá Landspítalanum um sýnatöku og
fleira og má finna þær hér http://www.rsp.is/syklafr/handbok/synataka.htm
- Miklu máli skiptir að vökvatekja sé næg hver sem önnur meðferð
er. WHO blandan inniheldur NaCl 3,5gr/L, KCl 1,5gr/L, glúkósa 20gr/L
og natríumbíkarbónat 2,5gr/L. Þessi blanda er vel fáanleg en annars
hægt að blanda hana á eftirfarandi hátt: Út í 1 L af soðnu vatni
er bætt hálfri teskeið af borðsalti, hálfri teskeið af matarsóda,
tvær til 3 matskeiðar af sykri og til að fá KCl fjóðung úr teskeið
af gervisalti eða ávaxtasafa.
- Rétt er að benda á upplýsingar frá CDC sem eru endurskoðaðar reglulega
og finnast á veraldarvefnum: http://www.cdc.gov/travel/foodwatr.htm.
Á sama stað eru upplýsingar ætlaðar læknum og sjúklingum um mismunandi
sjúkdóma http://www.cdc.gov/health/diseases.htm
. Einkum er upplýsingasíða um kampýlóbakter hagnýtar nú http://www.cdc.gov/ncidod/diseases/bacter/campyfaq.htm
|
|
Þessar
ráðleggingar taka ekki til barna en hjá þeim skiptir rétt vökvun
höfuðmáli og ekki ætti að nota lóperamíð eða önnur stoppandi lyf
við bráðum niðurgang hjá börnum. |
Heimildir
|
- The
Medical Letter 1998;40:47-50
- British
National Formulary No35(march) 1998 pp 41, 533.
- Avery
ME, Snyder JD. Oral therapy for acute diarrhea: the underused
simple solution. N Engl J Med 1990;323:891-4.
- Guerrant
RL, Bobak DA. Bacterial and protozoal gastroenteritis. N Engl
J Med 1991;325:327-40.
- Statement
on travellers diarrhea. Can Med Assoc J 1995;152:205-8.
- Thornton
SA, Wignall SF, Kilpatrick ME, Bourgeois AL, Gardiner C, Batchelor
RA, et al. Norfloxacin compared to trimethoprim/sulfamethoxazole
for the treatment of travelers diarrhea among U.S. military
personnel deployed to South America and West Africa. Milit
Med 1992;157:55-8.
- Wiström
J, Jertborn M, Ekwall E, Norlin K, Söderquist B, Strömberg
A, et al. Empiric treatment of acute diarrheal disease with
norfloxacin: a randomized, placebo-controlled study. Ann Intern
Med 1992;117:202-8.
- Keystone
J. Single-dose treatment for travellers diarrhoea. Lancet
1994;344:1520-1.
- Salam
I, Katelaris P, Leigh-Smith S, Farthing MJG. Randomised trial
of single-dose ciprofloxacin for travellers diarrhoea.
Lancet 1994;344:1537-9.
- Taylor
DN, Sanchez JL, Candler W, Thornton S, McQueen C, Echeverria
P. Treatment of travelers diarrhea: ciprofloxacin plus
loperamide compared with ciprofloxacin alone: a placebo-controlled,
randomized trial. Ann Intern Med 1991;114:731-4.
- Petruccelli
BP, Murphy GS, Sanchez JL, Walz S, DeFraites R, Gelnett J,
et al. Treatment of travelers diarrhea with ciprofloxacin
and loperamide. J Infect Dis 1992;165:557-60.
- Murphy
GS, Bodhidatta L, Echeverria P, Tansuphaswadikul S, Hoge CW,
Imlarp S, et al. Ciprofloxacin and loperamide in the treatment
of bacillary dysentery. Ann Intern Med 1993;118:582-6.
- De Bruyn
G, Hahn S, Borwick A. Antibiotic treatment for travellers'
diarrhoea (Cochrane Review). In: The Cochrane Library, Issue
3, 2000. Oxford: Update Software. http://hiru.mcmaster.ca/cochrane/cochrane/revabstr/ab002242.htm
|
Frá ritstjóra: Vinnhópur um smitsjúkdóma á vegum Cochrane
samtakanna birti 21 maí 2000 kerfisbundið yfirlit um gagnsemi
sýklalyfja við "ferðamannaniðurgang": De Bruyn G, Hahn S, Borwick
A. Antibiotic treatment for travellers' diarrhoea
(Cochrane Review). In: The Cochrane Library, Issue 3, 2000. Oxford:
Update Software. http://hiru.mcmaster.ca/cochrane/cochrane/revabstr/ab002242.htm
Unnið af Sigurði Helgasyni heimilislækni, Haraldi Briem og Sigurði
Guðmundssyni smitsjúkdómalæknum.
Unnið 1998/99
|