|
Bráð
versnun langvinnrar berkjubólgu
Inngangur
Kaflarnir um berkjubólgu (bráð og
bráð versnun) og lungnabólgu eru í endurskoðun
og þáverður tekið mið af nýlegum evidence
based leiðbeiningum frá Skotlandi [Community
management of lower respiratory tract infection in adults] sem
komu út í júní 2002. Leggja ber áherslu
á að þetta á allt við utanspítalasjúklinga.
Í þessum leiðbeiningum sem ná
aðeins yfir meðferð utan spítala er lögð
áhersla á að meta alvarleika sýkingarinnar
og praktíska flokkun neðri öndunarfærasýkinga.
Við þekkjum öll vandkvæði við klínískt
nothæfa skilgreiningu á neðri öndunarfærasýkingu
en hér er notast við hósta, fyrri lungnasögu,
mæði, lit á uppgang, ný merki frá lungum
við skoðun og atriði sem benda á aukinn alvarleika
sýkingar (hröð öndun, lágþrýstingur,
rugl og fleira). Sjúklingum er síðan skipt í
þrjá hópa.
- Bráð versnun á langvinnum lungnateppusjúkdóm.
Sjúklingar án nýrra merkja/teikna frá
lungum við hlustun en hafa undirliggjandi langvinnann lungnasjúkdóm
og kvarta um aukna mæði og litaðann uppgang.
- Sjúklingar með ný staðbundin
teikn frá lungum (brak eða breytt öndunarhljóð)
og grunaðir um lungnabólgu (Community aquired pneumonia).
- Neðri öndunarfærasýking
án gruns um lungnabólgu þ.e. engin staðbundin
teikn við lungnahlustun hjá sjúkling sem áður
var hraustur og uppfyllir engin atriði sem bendir til aukins
alvarleika sýkingar.
Leiðbeiningarnar hafa flæðiskema aftast
og einnig er mikil áhersla lögð á fræðslu
til sjúklinga og sérstakt útbýti ætlað
þeim fylgir. Fyrirhugað er að þýða
það á íslensku og staðfæra. Nálgast
má leiðbeiningarnar á http://www.sign.ac.uk/
undir guidelines.
Einnig er bent á nýlegar leiðbeiningar
unnar af Alberta Medical Association í Kanada http://www.albertadoctors.org/resources/guidelines.html
eða http://www.albertadoctors.org/resources/infectious.html
en titlarnir eru:
Guideline for the Management of Acute Exacerbation of Chronic Bronchitis
(AECB) (maí 2000 6 bls.)
Guideline for the Management of Acute Bronchitis (maí 2000
8 bls.)
Appendix: Management of Acute Exacerbation of Chronic Bronchitis (AECB)
(1 bls)
Guideline for The Diagnosis and Management of Community Acquired Pneumonia:Pediatric
(janúar 2002 11 bls.)
Guideline for The Diagnosis and Management of Community Acquired Pneumonia:
Adult (febrúar 2002 15 bls.)
Gagnsemi
sýklalyfja er umdeild þótt flestir grípi til þeirra. Sjúklingum
sem fá endurtekin köst er ekki æskilegt að gefa alltaf sama lyfið.
Lyfjaval
| amoxicillín |
500 mg x 3 á dag |
|
| amoxicillín klavúlanat |
250500 mg x 3 á dag |
|
| cefuroxim axetíl |
500 mg x 2 á dag |
|
| doxýcýklín |
200 mg fyrsta daginn,
síðan 100 mg á dag |
|
| mínócýklín |
200 mg fyrsta daginn,
síðan 100 mg á dag |
|
Unnið
1997
Að þessu
unnu Jón S Jónsson heimilislæknir, Karl G Kristinsson
sýklafræðingur,
Anna Þórisdóttir smitjsúkdómalæknir
og Ingólfur Kristjánsson heimilislæknir.
Þessi kafli er íendurskoðun og verður endurútgefinn
innan 6 mánaða.
|