|
|
Bráð
eyrnabólga hjá börnum
Sjá
neðst á síðu viðbætur frá ritstjóra
í maí 2003.
Inngangur
Ekki
er nauðsynlegt að meðhöndla vægar eyrnabólgur með sýklalyfjum nema
hjá börnum á fyrsta ári.
Frekar skal ráðleggja eftirlit á næstu dögum þar sem flestar vægar
eyrnabólgur lagast af sjálfu sér.
Beita skal sýklalyfjameðferð ef einkenni fara versnandi eða ef
þau verða þrálát.
Aldrei skal meðhöndla otitis simplex (roða á hljóðhimnu án vökva
í miðeyra) með sýklalyfjum.
Fyrsta meðferð
1. Ráðleggja má til að byrja með
verkjalyf (paracetamolum) og nefdropa.
2. Penicillín
| amoxicillín |
4050 mg/kg á dag,
deilt í 3 skammta í 5 daga |
3. Við penicillínofnæmi
| erytrómýcín |
40 mg/kg á dag,
deilt í 2 skammta í 5 daga |
trímetóprim/
súlfametoxazól |
6+30 mg/kg (0,75 ml mixt./kg)
á dag, deilt í 2 skammta í 5 daga |
Önnur meðferð
Sýklalyf
til vara
| amoxicíllín-klavúlanat |
40 mg/kg á dag,
deilt í 3 skammta í 5 daga |
| cefúroxím axetíl |
2030 mg/kg á dag,
deilt í 2 skammta í 5 daga |
Athugasemdir
- Vísa skal börnum til háls- nef- og eyrnalæknis
ef um er að ræða endurteknar eyrnabólgur
(oftar en þrisvar með stuttu millibili) og/eða vökvasöfnun í miðeyra
lengur en 3 mánuði samfellt.
- Fyrr skal vísa börnum innan 6 mánaða aldurs til HNE og þeim
sem hafa mikil einkenni, svo
sem viðvarandi næturóværð.
- Sé sjúklingur með eyrnabólgu þrátt fyrir 23
sýklalyfjameðferðir í röð þarf að gera hljóðhimnuástungu og rækta.
- Arason V. A., Kristinsson
K. G., Sigurðsson J. Á., Stefánsdóttir G., Mölstad
S., Guðmundsson S. Do antimicrobials increase the carriage rate
of penicillin resistant
pneumococci in children?Cross sectional prevalence study. BMJ 1996;
313: 387391.
- Rosefeld R. M. et al. Clinical efficacy of antimicrobial drugs
for acut otitis media:
Metaanalysis of 5400 children from thirthy-three randomized trials.
J Pediatr 1994; 124: 355367.
Unnið 1997 af Vilhjálmi A. Arasyni
heimilislækni, Skúla Gunnarssyni heimilislækni,
Þórði G. Ólafssyni heimilislækni, Ólafi Stefánssyni heimilislækni,
Karli G. Kristinssyni sýklafræðing og Sigurði Guðmundssyni smitsjúkdómalækni.
Frá ritstjóra 1 maí 2003:
Árið 2001 var stfonaður vinnuhópur
á vegum landlæknis um þetta efni en í lok árs 2002 var
hópurinn endurnýjaður. Í hópnum eru heimilislæknarnir
Arnar Guðmundsson, Ágúst Oddsson, Gylfi Haraldsson,
Pétur Skarphéðinsson, Sigurður Helgason og Viljhálmu
A Arason (formaður). Faglegir ráðgjafar/umsagnaraðilar
eru Friðrik Guðbrandsson háls nef og eyrnalæknir, Karl G Kristinsson
sýklasérfræðingur, Ragnheiður Elísdóttir barnalæknir
og Þórólfur Guðnason barnalæknir.
Rétt að benda á leiðbeiningar
unnar í anda gagnreyndrar læknisfræði (evidence
based) um greiningur og meðferð eyrnabólgu af Scottish Intercollegiate
Guideline Network (SIGN): Diagnosis and management
of childhood otitis media in primary care. Febrúar 2003. http://www.sign.ac.uk/guidelines/published/numlist.html
Kanadíska barnalæknafélagið (Canadian
Pediatric Society) gaf út leiðbeiningar um sýklalyfjagföf
hjá börnum með bráða eyrnabólgu
1998 og endurskoðaðar í apríl 2002. http://www.cps.ca/english/statements/ID/id97-03.htm
Vinnhópur um öndunarfærasjúkdóma á vegum Cochrane
samtakanna endurskoðar reglulega kerfisbundið yfirlit
um efnið og síðasta umtalsverða breyting var gerð
28 apríl 2000. Þar er niðurstaðan að lyf veiti mjög takamarkaðann
ávinning og þar sem flest tilvik lagist af sjálfu sér verði að vega
vandlega kosti og galla lyfjameðferðar. Glasziou
PP,Del Mar CB, Sanders SL, Hayem M,. Antibiotics for acute otitis
media in children (Cochrane Review). In: The Cochrane Library, Issue
2, 2003. Oxford: Update Software. http://www.update-software.com/abstracts/ab000219.htm
Heimildir
- SIGN (2003) Diagnosis and
management of childhood otitis media in primary care:
a national clinical guideline. Scottish Intercollegiate Guidelines
Network. http://www.sign.ac.uk/guidelines/published/numlist.html
[Accessed: 30-4-2003].
- Glasziou PP,Del Mar CB, Sanders SL, Hayem M,. Antibiotics
for acute otitis media in children (Cochrane Review). In: The Cochrane
Library, Issue 2, 2003. Oxford: Update Software. http://www.update-software.com/abstracts/ab000219.htm
NZGG (1998) Acute otitis media.
- New Zealand Guidelines Group. http://www.nzgg.org.nz/library.cfm
[Accessed: 30-4-2003].
|